Karellen
news

Ömmu og afakaffi

02. 04. 2024

Þann 21. mars var Ömmu og afakaffi og var sá viðburður vel sóttur. Fengum við fréttir af því að ömmu og afar hefðu komið langt frá.

Börnin voru mjög spennt fyrir því að fá ömmu og afa í heimsókn og komu staðgenglar fyrir suma sem ekki áttu heimangengt. Fengu sum að hringja myndsímtal í ömmu og afa og sýna þeim deildina sína.

Boðið var upp á appelsínudjús og kleinur.

Einnig fengum við hænuunga í heimsókn og var gaman að fá að skoða þá


Við þökkum kærlega fyrir komuna þeim sem sáu sér fært að mæta og stefnum á að bjóða ömmum og öfum aftur í heimsókn að ári.

© 2016 - 2024 Karellen