Karellen

Heilsueflandi leikskóla á vegum embættis landlæknis er ætlað að styðja leikskóla í að vinna markvisst að heilsueflingu og gera hana að hluta af daglegu starfi leikskólans.

Í Aðalnámskrá leikskóla frá 2011 eru heilbrigði og velferð skilgreind sem einn af sex grunnþáttum menntunar sem leikskólar eiga að hafa að leiðarljósi og innleiða í öllu sínu starfi.

Mikill samhljómur er með starfi Heilsueflandi leikskóla og grunnþættinum um heilbrigði og velferð. Heilsueflandi leikskóli mun því nýtast leikskólum sem verkfæri til að innleiða grunnþáttinn heilbrigði og velferð.

Í leikskólanum er verið að innleiða heilsueflandi leikskóla og einnig er Rangárþing eystra heilsueflandi samfélag. Innan leikskólans starfar teymi starfsmanna sem hefur umsjón með innleiðingu og endurmati á hvernig innleiðing heilsueflandi leikskóla gengur.

Heilsueflandi leikskóli leggur sérstaka áherslu á að vinna með átta lykilþætti sem tengjast skólastarfinu. Þeir eru:

Hreyfing,

Mataræði,

Geðrækt,

Öryggi,

Tannheilsa,

Fjölskylda,

Nærsamfélag

Starfsfólk.


© 2016 - 2024 Karellen