Lög um samþættingu þjónustu í þágu barna eða farsældarlögin voru sett árið 2021. Gert er ráð fyrir að innleiðing taki 3-5 ár.
Innan leikskólans starfar tengiliður farsældar sem heldur utan um mál er tengjast samþættingu þjónustu innan leikskólans. Samþætting er m.a. að kerfin tali saman þ.e. skóla, heilbrigðis og félagsmálakerfið og eru nemendarverndarráðs og farsældarfundir haldnir á mánaðar fresti þar sem tengiliður, leikskólaráðgjafi skólaþjónustu, félagsráðgjafi frá félagsþjónustu og hjúkrunarfræðingur frá heilsugæslu hittast og fara yfir mál.
Tengiliður Öldunnar er :
Sólbjört Sigríður Gestsdóttir, solbjort@hvolsvollur.is
Þegar barn er við nám í leik-, grunn- eða framhaldsskóla er tengiliður starfsmaður skólans þar sem barn er við nám. Ef það á ekki við er tengiliður starfsmaður félagsþjónustu þess sveitarfélags þar sem barn á lögheimili.
Tengiliður farsældar er:
-
starfsmaður í nærumhverfi barns og foreldra þess.
-
sá aðili sem styður við samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
-
sá sem veitir fjölskyldunni upplýsingar um þjónustu, tryggir aðgang að frummati, styður við samþættingu á fyrsta stigi þjónustu og kemur upplýsingum áfram ef þörf er á samþættingu á öðru stigi.
-
Hlutverk tengiliðar farsældar er:
-
að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi.
-
að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn.
-
að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
-
að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns.
-
að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns.
-
að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra.
-
að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á.
Tengiliður farsældar þarf að:
-
hafa sótt viðeigandi fræðslu til Barna- og fjölskyldustofu
-
uppfylla almennt hæfi skv. Reglugerð nr. 1180/2022
-
hafa þekkingu og yfirsýn yfir þá þjónustu sem er í boði í sveitarfélaginu/þjónustusvæðinu.
-
vera í góðum tengslum við þau börn og foreldra sem hann þjónustar.
-
eiga í góðum samskiptum við aðra þjónustuveitendur á svæðinu.
Lög um samþættingu þjónustu í þágu barna
Þjónusta samþættingar þjónustu í þágu barna skiptist í 3 stig og starfar tengiliður í málum á fyrsta stigi.
Stigin þrjú eru:
III. kafli. Stigskipting þjónustu í þágu farsældar barna.
9. gr. Stigskipting þjónustu.
Þjónusta í þágu farsældar barna er veitt á þremur þjónustustigum.
Farsældarþjónusta skal skilgreind með tilliti til þess hvaða stigi hún tilheyrir. Sé ekki mælt fyrir um flokkun farsældarþjónustu eftir þjónustustigum í lögum skulu ráðherrar sem bera ábyrgð á farsældarþjónustu setja reglugerðir, eftir atvikum að höfðu samráði við sveitarfélög, þar sem gerð er grein fyrir allri farsældarþjónustu sem undir hvern ráðherra heyrir og stigskiptingu þeirrar þjónustu samkvæmt ákvæðum í kafla þessum.
Leitast skal við að skilgreina opinberlega almenna þjónustu í þágu farsældar barna með sambærilegum hætti.
10. gr. Fyrsta stig þjónustu.
Fyrsta stigi þjónustu í þágu farsældar barna tilheyrir grunnþjónusta sem er aðgengileg öllum börnum og foreldrum. Þá tilheyra fyrsta stigi úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og snemmtækur stuðningur með það að markmiði að styðja við farsæld barns. Snemmtækur stuðningur er veittur í samræmi við frummat á þörfum barns og honum fylgt eftir á markvissan hátt.
11. gr. Annað stig þjónustu.
Öðru stigi þjónustu í þágu farsældar barna tilheyra úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og markvissari stuðningur með það að markmiði að tryggja farsæld barns. Markvissari stuðningur er veittur í samræmi við faglegt mat og/eða frumgreiningu á þörfum barns. Leitast skal við að veita markvissari stuðning á grundvelli stuðningsáætlunar um samþætta þjónustu og eftirfylgd.
12. gr. Þriðja stig þjónustu.
Þriðja stigi þjónustu í þágu farsældar barna tilheyra úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og sérhæfðari stuðningur með það að markmiði að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin. Sérhæfðari stuðningur er veittur í samræmi við sérhæft og ítarlegt mat og/eða greiningu á þörfum barns. Leitast skal við að veita sérhæfðari stuðning á grundvelli stuðningsáætlunar um samþætta þjónustu og eftirfylgd.