Karellen

Flæði

Haustið 2024 var ákveðið að hefja innleiðingu flæðis í leikskólastarf Öldunnar. Hafði þetta verið draumur lengi en þar sem leikskólinn hafði verið staðsettur á nokkrum stöðum undanfarin ár þá var ekki hægt að fara í innleiðingu. Haustið 2023 opnaði Aldan og þá tók við tími lærdóms þ.e. að læra á húsnæði leikskólans og að allir lærðu að vinna saman. Það gat tekið á að þurfa að deila sameiginlegu svæðum leikskólans með öðrum deildum.

Börnin kölluðu eftir því að fá að fara oftar í t.d. smiðju eða sal og með flæði verður nýting sameiginlegra svæða meiri.

Hugtakið flæði (e. flow) er komið frá sálfræðingnum Mihaly Csikszentmihalyi sem þekktur er fyrir rannsóknir sínar á sviði jákvæðrar sálfræði. Samkvæmt hans skilgreiningum er flæði ástand einstaklings þar sem hann finnur fyrir það miklum áhuga og ánægju af því sem hann fæst við að fátt annað kemst að. Upplifunin er ánægjuleg og vellíðunartilfinningin fær hann til að gleyma stað og stund og vilja halda áfram í verkefninu. . Athyglin fer öll í verkefnið, áhyggjur gleymast og ánægjutilfinningin knýr einstaklinginn áfram jafnvel þótt verkefnið sé nokkuð erfitt eða hættulegt og alls kostar óvíst hver útkoman verður. Mihaly nefnir nokkra þætti sem þurfa að vera til staðar svo einstaklingur upplifi svokallað flæðiástand (e. flow-condition). Meðal annars þurfa verkefnin að vera hæfilega krefjandi. Þau þurfa að vera ákveðin áskorun fyrir einstaklinginn, hvorki of auðveld né of erfið. Ef verkefnin eru of auðveld er hætta á að einstaklingurinn upplifi leiða og missi áhugann en ef verkefnin eru of erfið er hætta á að einstaklingurinn upplifi kvíða og missi móðinn og áhuga á viðfangsefninu. Líklegra er að einstaklingur upplifi flæðiástand ef markmið verkefnisins er skýrt og innri hvati er til staðar.

https://menntastefna.is/wp-content/uploads/2019/12...


Farið var af stað í lok október 2024 með árganga 2019,2020 og 2021. Voru flestar deildar opnar ásamt smiðju, sal, útisvæði og kubbasvæði. Börnin fengu val hvaða svæði þau væru á og var starfsfólk á öllum stöðum og svo aðstoðarmenn á ganginum. Einnig var fljótlega eftir að flæði hófst settur upp "flæðisveggur" þar sem börnin gatu farið að og séð hvaða svæði voru í boði og hvaða starfsmenn voru á hverju svæði. Fljótlega bættist árgangur 2022 í flæði.

Innleiðing er í fullum gangi en byrjunin lofar góðu. Reynt er að hafa svæði frá mjög rólegum svæðum í ærslasvæði þannig að börnin geti fundið verkefni við sitt hæfi.

Frétt frá 18.október 2024

Í uppfærslu á aðalnámskrá leikskóla er lögð enn meiri áhersla á leikur helsta kennsluleið barna. Hefur starfsfólk Öldunnar verið skoða hvernig við getum brugðist við því í daglegu starfi leikskólans. Ákveðið hefur verið innleiða flæði (e.flow) í daglegt starf og þar með fækka kennarastýrðum skipulögðum stundum með það markmiði styrkja samskipti og félagsfærni barnanna.

Fyrir áhuga sama þá á hugmyndafræðin um flæði á uppruna sinn rekja til rannsókna á jákvæðri sálfræði. Martin Seligman og Mihaly Csikszentmihalyi rýndu í jákvæða eiginleika mannsins og komust því hvað hefði áhrif á jákvæða styrkleika einstaklingsins og vellíðan. Samkvæmt Mihaly Csikszentmihalyi er flæði ákveðið hugarástand þar sem á sér stað nám þegar einstaklingur nær einbeitingu við viðfangsefni sitt þar sem áskorun og hæfni fer saman. Einnig mælum við með smella á þennan link og lesa sér meira til 15.pdf (hi.is) .

Á mánudaginn 21.október ætlum við byrja með flæði í breyttri mynd út frá hugmyndafræðum Seligman og Csikszentmihalyi. Munum við nýta sameiginleg svæði leikskólans enn frekar fyrir hádegi alla daga vikunnar. Þar sem börnum í árgöngum 2019, 2020 og 2021 mun gefast kostur á velja sér fara á kubbasvæði, sal, smiðju, útiveru eða leik inni á deildum. Ef börnin finna sig ekki á því svæði sem þau völdu er þeim frjálst velja sér annað svæði. Til byrja með munum við vera með aðstoðarmenn á göngum sem koma til með aðstoða börnin eftir þörfum. Til auka fyrirsjáanleika fyrir hvern dag verða morgunfundir á hverri deild þar sem börnin upplýsingar um hvaða svæði verða í boði og hvar starfsfólk verður þann daginn.

Í flæði viljum við efla sjálfræði og lýðræði barnanna þar sem þeim gefst tækifæri til þess vinna eftir áhugasviðum og styrkleikum sínum. Börnunum gefst með þessu kostur á velja sér svæði með vinum sínum þvert á deildar og árganga.

Njótum við leiðsagnar stjórnenda á Uglukletti í Borgarnesi í þessari innleiðingu. Ugluklettur hefur unnið eftir flæðiskenningunni síðan árið 2007, eru því reynslumikil á þessu sviði og teljum við okkur því vera heppin þau vilji vera í samstarfi með okkur.

Með því vera komin í eitt húsnæði bjóðast okkur betri tækifæri til þróa starfið okkar enn frekar með hag barnanna leiðarljósi.


Nánar um flæði hér

Skipulag í óskipulaginu

Ég elska flæði, minna stress

Við getum allt sem okkur langar

Leikur er barna yndi



© 2016 - 2026 Karellen