Karellen
news

Umsóknir fyrir skólaárið 2026-2027

11. 03. 2026

Nú er komið að því að skipuleggja komandi skólaár s.s. 2026-2027 í Öldunni. Samkvæmt verklagsreglum Öldunnar er eftirfarandi tekið fram :

Leikskólinn er fyrir börn frá 12 mánaða aldri til 6 ára. Börn hefja að jafnaði leikskólagöngu frá ágúst – október ár hvert og á öðrum tíma ef aðstæður leyfa. Úthlutun leikskólaplássa fer fram í maí ár hvert fyrir komandi skólaár og eru foreldrar því hvattir til að sækja um fyrir 1. maí ár hvert. Þegar barnið hefur fengið inngöngu í leikskóla er foreldrum svarað í rafrænu bréfi. Foreldrar þurfa að staðfesta leikskóladvölina rafrænt innan 14 daga frá því að boð berst. Hafi staðfesting frá foreldrum ekki borist innan tilskilins frests er barnið tekið af lista og öðru barni boðið plássið.

Umsókn um leikskólavist

Við hvetjum því foreldra til að vera búnir að sækja um fyrir 1. maí.

Nánari upplýsingar veitir Sólbjört Sigríður Gestsdóttir, skólastjóri Öldunnar sími : 488 4270/ netfang solbjort@hvolsvollur.is

© 2016 - 2026 Karellen