Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar og hefur svo verið gert um langt árabil.
Sjötti febrúar á sér þó lengri sögu og merkilegri því á þessum degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.
Í Öldunni er flottur og fjölbreyttur hópur barna, kennara og annars starfsfólks. Lögð er áhersla á að kennsla fari fram í gegnum leikinn og erum við í innleiðingu á flæði í leikskólastarfi ásamt því að innleiða agastefnuna jákvæðan aga.
Í dag starfa 42 við leikskólann og 112 börn eru með vistun. Því má segja að líf og fjör einkenni daglegt starf leikskólans.