Karellen

Vinsamlega merkið fatnað barnanna.

Leikskólinn er vinnustaður barnanna og því er nauðsynlegt að þau komi í fötum sem sjá má á, t.d. eftir málningarvinnu o.fl.. Spariklæðnaður eða föt sem illa þola þvott eru því óhentug. Athugið að ekki er tekin ábyrgð á fötum sem skemmast eða týnast. Einnig er æskilegt að þau séu í léttum innifatnaði sem þau ráða sjálf við að klæða sig úr og í.

Aukaföt þurfa alltaf að vera í töskunni til að grípa í, ef óhapp á sér stað.

Útifatnaður fer eftir veðri hverju sinni en mikilvægt er að hann sé víður og þægilegur og hindri ekki hreyfingar barnanna. Ullarsokkar og rúmur skófatnaður koma í veg fyrir að börnum verði kalt á fótunum. Í fataklefanum er lögð rík áhersla á að börnin hjálpi sér sjálf, við kippum okkur ekki upp við það þó fötin snúi ekki alveg rétt heldur er aðalmálið að barnið klæði sig sjálft. Athuga þarf að ekki séu snúrur á fatnaði, mjóir treflar eða vettlingar í bandi sem slys geta hlotist af.

Það er gólfkuldi í leikskólanum svo þægilegt getur verið að klæðast inniskóm. Það kemur sér einnig vel ef neyðarástand skapast í skólanum.

Aukaföt í töskunni

Buxur, peysur, nærföt, sokkabuxur, auka sokkar, ullarsokkar, húfa, hálskragi ( ekki trefill) vettlingar (ekki með böndum á milli), pollagalli, kuldagalli, skó (kuldaskó í kulda) og stígvél.

Nauðsynlegt er að athuga töskurnar á hverjum degi.

Hólf

Geyma má fatnað barnanna í hólfinu alla vikuna, á föstudögum þarf að tæma hólfin vegna þrifa. Foreldrar koma með margnota poka undir óhrein/blaut föt.

© 2016 - 2024 Karellen