Deildarskiptingar í Öldunni
Við hönnun og byggingu Öldunnar var unnið út frá að fjöldi barna á deildum yrði ekki meiri en :
1 árs - 2 ára,miðað við 12 börn á deild
2 ára - 3 ára miðað við 16 börn á deild
3-5 ára miðað við 18 börn a deild
Þetta var gert til að bæta starfsaðstæður barna og starfsfólks á deildum.
Með því að minnka áreiti og vera með góða hljóðvist er mikilvægt fyrir velferð allra sem starfa í Öldunni.
Þar sem miðað er við visst hámark barna á deildum er allajafna ekki hægt að hafa aldurshreinar deildar og því geta stundum verið 2-3 árgangar á sömu deildinni saman á deild. Allt er þetta miðað við fjölda barna í hverjum árgangi fyrir sig þegar verið er að raða á deildar.
Samkvæmt verklagsreglum leikskólans þurfa foreldrar barna sem hyggjast nýta leikskólapláss á komandi skólaári að vera búnir að sækja um fyrir 1. maí ár hvert.
Eftir að fjöldi barna er ljós fer stjórnendateymi leikskólans þ.e. skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, yfirmaður sérkennslu og deildarstjórar yfir barnalista og raðar á deildar.
Það þarf að hafa í huga samsetningu barnahóps hverrar deildar og vill stjórnendateymi leggja áherslu á festu, öryggi og velferð barnanna. Einnig þarf að huga að kynjaskiptingu , fjöltyngi, aldri, systkini ekki saman á deild, börnum starfsfólks ofl við röðun barna á deildar.
Foreldrar eru svo upplýstir af deildarstjóra barns hvaða deild barnið fer á eða hvort það verði áfram á sinni deild. Foreldrar nýrra barna fá tölvupóst frá skólastjóra með boð um vistun og á hvaða deild barnið verður aðlagað á.
Hér má sjá kynningu á deildarskiptingum sem stjórnendateymi kynnti á foreldrafundi haustið 2024
