Aldan er 8 deilda leikskóli og heita deildarnar Dalur, Laut, Þúfa, Holt, Hóll, Hæð, Ás og Hamrar. Hægt er að byggja tvær deildar til viðbótar við leikskólann. Þær deildar munu fá nöfnin Gil og Fell.
Við hönnun leikskólans var haft til hliðsjónar að hljóðvist væri góð í húsnæðinu og að börnum og starfsfólki yrði fækkað á deildum.
Á deildum 1 árs barna er gert ráð fyrir 12 börnum á deild og 4 starfsmönnum.
Á deildum 2-3 ára barna er gert ráð fyrir 16 börnum á deild og 3-4 starfsmönnum
Á deildum 4-5 ára er gert ráð fyrir 18 börnum á deild og 3 starfsmönnum.