Sú hefð skapaðist á Örkinni að starfsfólk léki Búkollu fyrir börnin á degi íslenskrar tungu. Þetta hefur vakið lukku ár eftir ár og ákváðum við að halda í þessa skemmtilegu hefð þó við séum flutt í nýtt húsnæði og margar breytingar orðið við það.
Í morgun var sameiginleg stund í fjölnota salnum okkar þar sem starfsfólk sló í gegn í leikritinu Búkolla. Einnig var afmælissöngur sunginn fyrir Lubba en hann á einmitt afmæli í dag.
Leyfum myndunum njóta sín








