Karellen
news

Desember í Öldunni

17. 12. 2024

Það hefur mikið verið í gangi í Öldunni á aðventunni.

Börnin hafa verið að búa til jólagjafir handa foreldrum sínum og eru fyrirfram ákveðin verkefni hjá yngstu tveimur árgöngunum þ.e. árgangi 2022 og 2023. Börn í árgangi 2021 fá bundið val þ.e. að þau fá að velja um 6 viðfangsefni sem þau skapa handa foreldrum sínum. Börn í árgöngum 2019 og 2020 fá frjálst val og geta skapað allt milli himins og jarðar á meðan efniviður er til staðar í leikskólanum. Allt ferlið er skráð og mjög gaman að fylgjast með börnunum útbúa gjafir fyrir foreldra sína og mikil vinna lögð í þetta verkefni þeirra.

Aðventustund var haldinn í leikskólanum 6. desember og tókst mjög vel. Börnin höfðu búið til og skreytt piparkökur sem voru í boði fyrir foreldra í aðventustundinni. Góð mæting var hjá foreldrum og áttum við notalega stund seinnipart dags í leikskólanum.

Jólaball leikskólans var haldið 12. desember og var ballið tvískipt. Fyrst voru yngstu tveir árgangarnir með ball og svo komu eldri þrír árgangarnir á ball. Mikið stuð var á ballinu og ekki skemmdi fyrir að fá nokkra jólasveina í heimsókn sem dönsuðu með þeim í kringum jólatréið og gáfu svo börnunum pakka. Börnin fengu litabók og liti í pökkunum sínum.

Þann 16. desember skunduðu árgangar 2019 og 2020 í Stórólfshvolskirkju og hittu nýja prestinn hann Kristján Arason. Vel var tekið á móti þeim og sungu þau nokkur lög og Kristján spjallaði aðeins við þau. Börnin stóðu sig með stakri prýði þó þau væru dálítið þreytt þegar þau komu til baka eftir þessa löngu göngu.

Þann 18. desember verður svo jólahugvekja fyrir árganga 2021,2022 og 2023 í leikskólanum og mun presturinn kíkja í heimsókn til okkar.

Flæðið hefur gengið vel og eru fjórir árgangar í flæði alla morgna. Ekki hefur þó verið flæði alla daga í desember þar sem börnunum langaði að fara í gönguferð í myrkrinu til að skoða jólaljósin og Grýlu heima hjá Steinu í Hvolsskóla.

Einnig var svo frábært veður einn daginn og snjór að allir fóru út að njóta.

Föstudaginn 20. desember, mánudaginn 23. desember og 2. janúar verða skráningadagar í leikskólanum og hafa deildarstjórar sent skilaboð á Karellen á hvaða deild þau börn sem mæta verða á þessa daga. Leikskólinn verður lokaður föstudaginn 27. desember og mánudaginn 30. desember.

© 2016 - 2026 Karellen