Karellen
news

Fjallganga árgangs 2020

02. 09. 2025

Undanfarin ár hefur elsti árgangur leikskólans gengið á Hvolsfjall sama dag og Hvolsskóli fer í fjallgöngur með nemendur.

Í dag skunduðu 22 börn og 3 kennarar á Hvolsfjall í blíðviðrinu og höfðu mjög gaman að.

Þessi fjallganga er hluti af samstarfi milli skólastiga í Rangárþingi eystra og er vonandi kominn til að vera.

© 2016 - 2026 Karellen