Kæru foreldrar
Í uppfærslu á aðalnámskrá leikskóla er lögð enn meiri áhersla á að leikur sé helsta kennsluleið barna. Hefur starfsfólk Öldunnar verið að skoða hvernig við getum brugðist við því í daglegu starfi leikskólans. Ákveðið hefur verið að innleiða flæði (e.flow) í daglegt starf og þar með fækka kennarastýrðum skipulögðum stundum með það að markmiði að styrkja samskipti og félagsfærni barnanna.
Fyrir áhuga sama þá á hugmyndafræðin um flæði á uppruna sinn að rekja til rannsókna á jákvæðri sálfræði. Martin Seligman og Mihaly Csikszentmihalyi rýndu í jákvæða eiginleika mannsins og komust að því hvað hefði áhrif á jákvæða styrkleika einstaklingsins og vellíðan. Samkvæmt Mihaly Csikszentmihalyi er flæði ákveðið hugarástand þar sem á sér stað nám þegar einstaklingur nær einbeitingu við viðfangsefni sitt þar sem áskorun og hæfni fer saman. Einnig mælum við með að smella á þennan link og lesa sér meira til 15.pdf (hi.is) .
Á mánudaginn 21.október ætlum við að byrja með flæði í breyttri mynd út frá hugmyndafræðum Seligman og Csikszentmihalyi. Munum við nýta sameiginleg svæði leikskólans enn frekar fyrir hádegi alla daga vikunnar. Þar sem börnum í árgöngum 2019, 2020 og 2021 mun gefast kostur á að velja sér að fara á kubbasvæði, sal, smiðju, útiveru eða leik inni á deildum. Ef börnin finna sig ekki á því svæði sem þau völdu er þeim frjálst að velja sér annað svæði. Til að byrja með munum við vera með aðstoðarmenn á göngum sem koma til með að aðstoða börnin eftir þörfum. Til að auka fyrirsjáanleika fyrir hvern dag verða morgunfundir á hverri deild þar sem börnin fá upplýsingar um hvaða svæði verða í boði og hvar starfsfólk verður þann daginn.
Í flæði viljum við efla sjálfræði og lýðræði barnanna þar sem þeim gefst tækifæri til þess að vinna eftir áhugasviðum og styrkleikum sínum. Börnunum gefst með þessu kostur á að velja sér svæði með vinum sínum þvert á deildar og árganga.
Njótum við leiðsagnar stjórnenda á Uglukletti í Borgarnesi í þessari innleiðingu. Ugluklettur hefur unnið eftir flæðiskenningunni síðan árið 2007, eru því reynslumikil á þessu sviði og teljum við okkur því vera heppin að þau vilji vera í samstarfi með okkur.
Með því að vera komin í eitt húsnæði bjóðast okkur betri tækifæri til að þróa starfið okkar enn frekar með hag barnanna að leiðarljósi.