Í Öldunni er gaman og við erum alltaf að vinna að því að þróa og bæta starf leikskólans.
Íleikskólanum starfar fjölbreyttur hópur fólks við hin ýmsu verkefni dags daglega. Við erum með kennara, leiðbeinendur, ræstitækna, matsveina, matreiðslumeistara, leikskólaliða og svo mætti lengi telja. Við erum ótrúlega ánægð með starfsaðstæður í leikskólanum og nú er mikil vinna lögð á þá hugsun hvernig lærdómssamfélag viljum við hafa í Öldunni. Þá bæði fyrir börn og starfsfólk.
Aðalnámskrá leikskóla leggur áherslu á að leikur sé aðal námsleið barna í námi í leikskólanum og höfum við markvisst unnið að því innan leikskólans að veita samfelldari tíma til leiks í daglegu starfi. Gildin okkar eru samskipti, virðing og samvinna og á þeim gildum byggjum við starfið okkar á ásamt Hugsmíðahyggjunni sem er okkar stefna í leikskólastarfi og einnig vinum við eftir agastefnunni Jákvæður agi.
Nú þegar við erum kominn í eitt hús og aðeins farinn að læra á þau tækifæri sem gefast í námsumhverfinu ákváðum við að byrja innleiðingu á hugmyndafræði flæðis part úr degi.
Í haust byrjuðum við að innleiða stöðvarvinnu með hugmyndafræði flæðis (flow) að leiðarljósi. Flæði er í raun hugarástand barna þegar þau hafa tækifæri til að vinna eftir sínum styrkleikum og geta sökkt sér í viðfangsefni sem þau hafa áhuga á.
Stöðvarvinnan er unninn á allt að 9 stöðvum innan sem utan leikskólans en stöðvarnar eru :
-Hamrar með áherslu á læsi
-Ás með áherslu á vísindi
-Hæð með áherslu á stærðfræði
-Hóll með áherslu á hlutverkaleik
-Holt með áherslu á fínhreyfivinnu
-Smiðja með áherslu á sköpun
-Salur með áherslu á hreyfingu og sköpun
-Kubbasvæði (Þúfa) með áherslu á kubba allskonar sem er m.a. mikil stærðfræði og eflir rýmisgreind
Útisvæði leikskólans og nágrenni með áherslu á hreyfingu, heibrigði og velferð ásamt kennslu um nærumhverfi leikskólans.
Þetta er ekki tæmandi listi og ótal margt hægt að gera í gegnum leikinn og ekki síst þegar samfelldur tími til leiks er góður.
Kennarar og leiðbeinendur hafa umsjón með stöðvum og einnig eru kennarar til staðar á gangi ef aðstoða þarf barn við að finna sér eitthvað að gera.
Með þessari hugmyndafræði teljum við að börn geti unnið út frá sínum styrkleikum, eflist í félagsfærni þ.e. að fá að máta sig við ýmis hlutverk innan leikskólans, aukinn seigla, fái að prófa ýmsa þætti þar sem ekki eru tímamörk á hversu lengi barnið þarf að vera á viðkomandi stöð.
Hvet ykkur til að skoða myndbandið ef þið viljið fá smá innsýn í starfið okkar