Elsti árgangur leiksólans lauk sínum grunnskólaheimsóknum í dag í bili. Við höfum í mörg ár verið í góðu samstarfi við grunnskólann. Hluti af því samstarfi er að fara með elsta árgang leikskólans í nokkrar heimsóknir sem að byrja í janúar. Nemendum 1. Bekkjar og elstu nemendum leikskólans er blandað í hópa með um 8-9 nemendur. Í ár voru hóparnir 4 sem að hittu 4 kennara og var hver kennari með sitt ákveðna verkefni. Unnur var með íslensku, leik og klappa samstöfur, Harpa Sif var með Dupló kubba- að vinna saman og fara eftir fyrirmynd, Asta var með myndlist og Árný Jóna var með íslenskuverkefni.
Markmiðið er að okkar nemendur kynnist starfinu sem að unnið er í Hvolsskóla og einnig að þau kynnist nemendum, kennurum og starfsfólki. Hluti af þessu samstarfi er að spyrja nemendur 1. bekkjar hvað sé öðruvísi í grunnskóla. Nokkur af svörunum eru: það þarf að læra mikið, lesa, fara til skólastjóra ef að einhver er ókurteis, stuttar frímínúntur, gera allt sjálfur, læra sund, fara í smiðjur og fleira og fleira.
Hóparnir eru á 4 mismunandi stöðum út um allan skóla og vinna verkefnið í um 80 mínúntur. Þá borða nemendur leikskólans einnig í þessi skipti í matsal Hvolsskóla.
Í dag fengum við óvænt að fara á elsta stig og skoða þar en nemdur elsta stigs eru með þema um Harry Potter.