Til leikskólastjóra komu nokkrir drengir í árgangi 2019 og vildu halda partý og hvort það væri í lagi. Ákveðið var að reyna að finna hentugan tíma og tæpum mánuði seinna varð partýið að veruleika.
Skipað var í skipulagsnefnd sem hélt utan um skipulag partýsins. Skólastjóri ritaði fundargerð og allir fundarmenn skrifuðu undir.
Ákveðið var að veitingar yrðu kaka, saltstangir og tvær gerðir af djús og var lýðræðisleg kosning um hvaða tegundir af djús voru keyptar. Börnin fóru til Braga kokks og báðu hann um að baka sonic köku og hann varð við því.
Daginn fyrir partý var skreytinganefnd að störfum og skreytti fundarherbergið hátt og lágt því þar vildi skipulagsnefnd að partýið yrði haldið.
Ákveðið var að skólastjóri myndi senda tilkynningu til foreldra að öllum yrði velkomið að mæta í búning, kósýgalla eða náttfötum því þetta væri uppbrotsdagur og þá mætir maður öðruvísi en vanalega.
Kosið var um hvaða mynd ætti að horfa á og varð Sonic 3 hlutskörpust í kosningu. Skólastjóri var þeim til aðstoðar í skipulagsferlinu.
Það var gaman að sjá hversu miklar skoðanir börnin höfðu á þessu ferli og útfærslur skreytinga og staðsetningu partýsins. Held að okkur hinum fullorðnu hefði aldrei dottið í hug að halda partý í 14 fm herbergi en þau vildu horfa á sjónvarp ekki sjávarpa og þá reddum við bara málunum. Þröngt sitja sáttir.
Skólastjóri var beðinn um annað partý þegar Sonic 4 kemur út. Við sjáum til ;)
