Þann 7. mars var sýning í leikskólanum og var að því tilefni kósý og náttfatadagur. Var börnum í árgöngum 2018 og 2019 skipt í 3 hópa var hver sýning í kringum 40 mínútur.
Læt fylgja með kynningu á sýningunni frá Hólmfríði.
Sýningin Töfrandi heimur er tónlistarsýning með töfrandi ívafi. Hún er í höndum Hólmfríðar Samúelsdóttur, Arnars Jónssonar og Glódísar Margrétar Guðmundsdóttur. Markmið sýningarinnar er að gleðja með tónlist og skapa róandi og ævintýralegt umhverfi í kringum tónlistarflutninginn. Börnin taka virkan þátt en rætt og frætt verður um tilfinningar, mikilvægi hvíldarinnar og góðar leiðir til að skapa ró.
Salurinn verður myrkvaður og þakinn dýnum, pullum og púðum. Á sýningunni fá öll börn teppi og rafmagnskerti. Norðurljósalampar verða notaðir til að skapa ævintýralegan blæ. Kynnt verða hljóðfæri sem hafa róandi eiginleika og fræðslu um skynfærin er fléttað saman við lifandi tónlistarflutning.
Lög sýningarinnar má finna á nýrri fjölskylduplötu sem ber heitið Hjartans mál. Hægt er að nálgast tónlistina á Spotify. Á heimasíðu plötunnar má finna frekari upplýsingar um flytjendur og efnið. Tónlistin hentar sérstaklega vel fyrir svefninn.
Tónlistin: https://open.spotify.com/album/3vZ2EbH8e6EzROsfK6XBO6?si=hqEg60-aSP2bpg6g0MOzPw
Heimasíða: www.hjartansmal.is

Kærar þakkir fyrir skemmtilega og rólega sýningu