Karellen
news

Útieldhúsið

20. 12. 2024

Þegar við fluttum í Ölduna fengum við útieldhús að gjöf frá kvenfélaginu Hallgerði.

Það kemur að góðum notum og stundum hægt að brjóta upp starfið og bjóða uppá t.d. kakó og lummur sem er hitað eða steikt í útieldhúsinu.

Í gær var boðið uppá smá hressingu á útisvæði leikskólans og má segja að það hafi slegið í gegn.



© 2016 - 2026 Karellen